Kalt í dag en minnkandi frost á morgun
Snjóþekja eða hálka er á vegum á Ströndum og Norðurlandi vestra. Það er suðaustlæg átt 3-8 m/s og léttskýjað, frost 4 til 14 stig. Gengur í sunnan 5-13 síðdegis á morgun, þykknar upp og minnkandi frost.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Suðaustan 5-10 m/s og snjókoma eða slydda með köflum um landið sunnan og vestanvert, en lægir og styttir upp eftir hádegi. Hiti um frostmark. Hægur vindur á Norður- og Aausturlandi, bjartviðri og frost að 10 stigum.
Á sunnudag:
Austan átt 5-13 m/s, skýjað og dálítil slydda eða snjókoma suðaustantil, en bjart veður um landið vestanvert. Hiti um eða yfir frostmarki Sunnan- og Vestanlands, annars frost 1 til 9 stig.
Á mánudag og þriðjudag:
Austlæg átt 5-13 m/s, en hægari vindur fyrir norðan. Skýjað og úrkomulítið með suður- og austurströndinni, annars léttskýjað. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir milda austlæga átt með rigningu eða slyddu, en bjart með köflum norðantil.