Kiwanisklúbbar norðanlands sameinast um gjöf til barnadeildar sjúkrahúss Akureyrar

Elma Rún Ingvarsdóttir sérfræðingur í barnahjúkrun, Aðalheiður Guðmundsdóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur barnadeildar og Andrea Andrésdóttir forstöðulæknir barnadeildar Sjúkrahúss Akureyrar. Mynd: Facebook-síða SA.
Elma Rún Ingvarsdóttir sérfræðingur í barnahjúkrun, Aðalheiður Guðmundsdóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur barnadeildar og Andrea Andrésdóttir forstöðulæknir barnadeildar Sjúkrahúss Akureyrar. Mynd: Facebook-síða SA.

Óðinssvæði Kiwanis færði fyrir helgi barnadeild sjúkrahúss Akureyrar innihitadýnu og vöggu að gjöf en gamla hitadýnan var löngu ónýt svo þetta var kærkomin gjöf. Á Facebooksíðu sjúkrahússins á Akureyri kemur fram að dýnan sé notuð fyrir fyrirbura og léttbura sem þurfa aðstoð við að halda líkamshita og geti verið inni á stofu með foreldrum sínum og þurfi þá ekki að vera í hitakassa.

„Það er virkilega mannbætandi og gjöfult að starfa í félagsstarfi sem gefur ekki aðeins af sér skemmtilegan félagsskap og hláturmilda fundi, heldur einnig stuðning, hjálpsemi og kærleik í samfélagið. Kiwanis hreyfingin starfar eftir kjörorðunum „hjálpum börnum heims“ og kiwanisklúbbar Óðinssvæði sameinuðust núna á vordögum í að styrkja barnadeild sjúkrahús Akureyrar,“ segir Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, Kiwanisklúbbnum Freyju sem er einn af átta klúbbum Óðinssvæðis en aðrir eru Drangey á Sauðárkróki, Skjálfandi Húsavík, Kaldbakur Akureyri, Herðubreið Mývatnssveit, Grímur Grímsey, Askja Vopnafirði og Skjöldur í Fjallabyggð.

Fleiri fréttir