Leki í kalda vatninu á Hólavegi
feykir.is
Skagafjörður
03.02.2016
kl. 10.59
Frá framkvæmdum Skagafjarðarveitna við Bárustíg á Sauðárkróki. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Ljósm./BÞ
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Skagafjarðarveitum er kominn upp leki í kalda vatninu sunnarlega á Hólavegi. Til að viðgerð geti farið fram þarf að loka fyrir rennsli á Hólavegi sunnan Öldustígs, Hólmagrund og Fornósi.
„Búast má við lokun upp úr klukkan 10 og að hún muni standa eitthvað fram eftir degi. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í fréttatilkynningu.
