Lífhagkerfið í Skagafirði - Myndband
Á NordBio ráðstefnunni sem fram fór í Silfurbergi í Hörpu dagana 5.-6. október sl. var frumsýnt myndband framleitt af Skottufilm á Sauðárkróki um lífhagkerfið. Í þessu verkefni var Skagafjörður notaður sem dæmi um sterkt svæði í þeim skilningi. En lífhagkerfi er hagkerfi sem byggir á nýtingu lifandi auðlinda á landi og í sjó þar sem leitast er við að hámarka ávinning án þess að ganga á auðlindirnar.
„Við erum að vinna verkefni núna þar sem við notum Skagafjörð sem dæmisögu eða „case studyu“ um sterkt hagkerfi þar sem sveitarfélög, fyrirtæki og fólkið hefur tekið höndum saman og komið af stað flottu lífhagkerfi,“ segir Ragnhildur Friðriksdóttir sérfræðingur hjá Matís við Feyki þegar myndbandið var frumsýnt í Árskóla fyrir skömmu.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið sem er það sem kallast er 360 gráðu vídeó. Þá getur þú skoðað allt umhverfi myndbandsins með því að færa myndina til á skjánum með bendli eða fingri. Sjón er sögu ríkari.