Lúðalegra getur það ekki orðið!
„Menningarhúsið Hof mun hristast, skjálfa og skreppa saman, útaf skellihlátri, þann sjötta mars langnæstkomandi. Þá verður haldið þar suddalega sögulegt og skelfilega skrautlegt skemmtikvöld undir yfirskriftinni "Lúðar og létt tónlist".
Hinir aleinu og dagsönnu Hvanndalsbræðu leika við hvern sinn fingur og einnig á vel valin hljóðfæri, ef allt fer að óskum,“ segir í fréttatilkynningu sem Feyki barst á dögunum.
„Bræðurnir úr Hvanndal eru fyrir norðan, sem fyrr, en lúðarnir koma að sunnan. Þeir eru útvarpströllið, eftirherman og öðlingurinn Sólmundur Hólm og Landabruggarinn, larfurinn og letiblóðið Gísli Einarsson. Þeir láta móðan mása af miklum móð og reita af sér brandara, bringuhár og annað sem hönd á festir. Rögnvaldur gáfaði stígur einnig á stokk og eys úr sínum viskubrunni með teskeið,“ segir enn fremur í tilkynningunni, en þess má geta að Gísli Einarsson er brottfluttur tengdasonur Skagafjarðar og Rögnvaldur gáfaði er af skagfirsku bergi brotinn.
„Hvanndalsbræður flytja öll sín skemmtilegustu lög, og þau lakari líka.
Þetta er eitthvað sem getur alveg klikkað, en alls ekki víst að það geri það.
Miðasalan er í fullum gangi og já, ótrúlegt en satt það er búið að selja helling,“ segir að lokum í fréttatilkynningunni.