Magnesium og meltingarvegurinn

Næstkomandi mánudag, 23. febrúar, ætlar Hallgrímur Magnússon læknir að halda fyrirlestur á Kaffi Krók um magnesium og meltingarveginn. Fyrirlesturinn verður á Kaffi Krók og hefst kl. 18:00. Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn en hægt verður að kaupa kaffi á staðnum.

Hall­grím­ur seg­ir að magnesí­um sé þriðja mik­il­væg­asta efni lík­am­ans. Hallgrímur hefur um árabil meðhöndlað sjúklinga sína með magnesíum. Í dag er almennt talið að magnesíum sé þriðja mikilvægasta efni líkamans á eftir lofti og vatni en það tekur þátt í yfir 7000 efnahvörfum og efnahlutverkum í líkamanum. Við gæt­um ekki talað og ekki séð ef við hefðum ekki magnesí­um, eins fram kemur í viðtali við Hallgrím sem birtist á mbl.is í janúar á síðasta ári.

Fleiri fréttir