Mark Watson dagurinn á sunnudag

Mark Watson dagurinn verður haldinn hátíðlegur í Glaumbæ sunnudaginn 19. júlí. Vakin er athygli á því að vegna slæmrar veðurspár laugardaginn 18. júlí, var viðburðurinn færður aftur um einn dag, til 19. júlí. Í tilefni af afmæli skoska aðalsmannsins Mark Watson 18. júlí, stendur Byggðasafn Skagfirðinga fyrir dagskrá í Glaumbæ. Watson var mikill Íslandsvinur og er honum margt að þakka, þar með talið rausnarleg peningagjöf til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ árið 1938 sem átti sinn þátt í að bærinn er enn varðveittur.

Watson hefur jafnframt verið titlaður bjargvættur íslenska fjárhundakynsins og er afmælisdagur hans "Dagur íslenska fjárhundsins". Af því tilefni ætla íslenskir fjárhundar að heimsækja safnið. Hundarnir eru ljúfir og spakir og óhætt er að klappa þeim með leyfi eigenda. Venju samkvæmt er boðið upp á gamla leiki á safnsvæðinu kl. 12 og leiðsögn kl. 13. Leiðsögnin verður þó með öðru sniði en venjulega þar sem áhersla verður lögð á mann dagsins, Mark Watson. Þá verður ungum gestum boðið á bak á hestum frá Syðra–Skörðugili kl. 14.

Gamli bærinn í Glaumbæ opnar dyr sínar alla daga frá kl. 10-18 í sumar og býður velkomna alla þá gesti, innlenda og erlenda, sem leggja land undir fót. Áskaffi er opið frá kl. 12-18 með gómsætar veitingar að venju.

Við minnum lögheimilisíbúa Svf. Skagafjarðar og Akrahrepps á ársmiðann sem gildir í eitt ár frá kaupum hans óháð fjölda heimsókna.
Verið velkomin í Glaumbæ!

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir