Myndasyrpa frá opnun Fiskmarkaðar Sauðárkróks
Það var móttaka og opið hús í Fiskmarkaði Sauðárkróks sem opnaði í splunkunýjum og rúmgóðum húsakynnum á Sandeyrinni á Króknum í dag. Fjöldi manns sótti Fiskmarkaðinn heim en boðið var upp á ljúfa tóna og veitingar um leið og Skagfirðingar og gestir fögnuðu opnunni með eigendum.
Feykir var á staðnum með myndavélina og hér að neðan má sjá slatta af myndum sem voru teknar við þetta tækifæri.