Námskeið Farskólans aldrei verið fleiri
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
20.12.2011
kl. 08.59
Námskeið á vegum Farskólanum – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra hafa aldrei verið fleiri en nú en haustönn 2011 er nú lokið.
Samkvæmt heimasíðu Farskólans voru námskeið á haustönn 38 talsins. Flest þeirra voru haldin á Sauðárkróki eða 19, á Hvammstanga voru haldin 14 námskeið, Blönduósi fjögur og eitt í Varmahlíð. Alls hefur Farskólinn staðið fyrir 64 námskeiðum á árinu sem er að líða.