Norðvestlendingar í úrslitakeppni Söngvakeppninnar 2015
Sjö lög munu keppa til úrslita í Söngvakeppninni 2015 næstkomandi laugardag, þann 14. febrúar, í beinni útsendingu frá Háskólabíói. Nokkrir Norðvestlendingar verða þar á meðal en þá kemur í ljós hvert þeirra laga verður framlag Íslands í Eurovision í Vínarborg í maí.
„Lítil skref“ er flutt af brottfluttum Blönduósing, henni Maríu Ólafsdóttur, eins og greint var frá á Feyki.is fyrir helgi.
Fleiri þátttakendur eiga ætti að rekja til Blönduóss, samkvæmt því sem segir á Húna.is. Í fyrri undaúrslitakeppninni söng Elín Sif sig inn í lokakeppnina með lagið „Í kvöld“ en hún er dóttir Helgu Rutar Guðmundsdóttur sem er dóttir Elínar og Skagfirðingsins Guðmundar Inga Leifssonar, fyrrum fræðslustjóra á Blönduósi. Samkvæmt ábendingu sem barst til Feykis var Leifur, pabbi Guðmundar, bróðir Péturs á Hjaltastöðum, Steina í Hvammi, Hjalta á Hjalla, Dóra Gull og Jórunni (Nunnu) sem bjó lengst af á Frostastöðum.
Guðfinnur Sveinsson, sonur Bjarkar Vilhelmsdóttur og Sveins Rúnars Haukssonar á Blönduósi, er lagahöfundur og flytjandi af tveimur af laginu „Fjaðrir“ sem einnig komst áfram sl. laugardag. Þá er brottfluttur Skagfirðingur einnig lagahöfundur og flytjandi af því lagi, Vignir Rafn Hilmarsson, en hann er sonur Hilmars Sverrissonar og Jennýjar Ragnarsdóttur.