Ný gámasvæði í Skagafirði verði mönnuð á opnunartímum

Í ár verður unnið að uppbyggingu gámasvæðis við Varmahlíð en fyrir áramót var
skrifað undir verksamning við lægstbjóðanda vegna verksins. Einnig er stefnt á að klára hönnun og hefja vinnu við samskonar svæði á Hofsósi á þessu ári segir í svari byggðarráðs Svf. Skagafjarðar til Álfhildar Leifsdóttur.
Í ár verður unnið að uppbyggingu gámasvæðis við Varmahlíð en fyrir áramót var skrifað undir verksamning við lægstbjóðanda vegna verksins. Einnig er stefnt á að klára hönnun og hefja vinnu við samskonar svæði á Hofsósi á þessu ári segir í svari byggðarráðs Svf. Skagafjarðar til Álfhildar Leifsdóttur.

Á vegum um hverfis- og samgöngunefndar Svf. Skagafjarðar er unnið að stefnumótun varðandi sorphirðu í dreifbýli en ljóst þykir að leita þarf leiða til að minnka útgjöld.  Ellegar þarf að afla aukinna tekna í málaflokknum sem rekinn hefur verið með miklum halla undanfarin ár og er bilið milli gjalda og tekna mun meira í dreifbýli en þéttbýli.

Þetta kemur fram í svari byggðarráðs sveitarfélagsins til Álfhildar Leifsdóttur sem spurði m.a. hver stefna sveitarfélagsins væri hvað varðar sorphirðu í dreifbýli.

„Nú í ár verður unnið að uppbyggingu gámasvæðis við Varmahlíð en fyrir áramót var skrifað undir verksamning við lægstbjóðanda vegna verksins. Einnig er stefnt á að klára hönnun og hefja vinnu við samskonar svæði á Hofsósi á þessu ári.
Ný gámasvæði verða afgirt og þannig útbúin að auka megi flokkunina enn frekar á þeim úrgangi sem þangað berst. Gert er ráð fyrir að svæðin verði mönnuð á opnunartímum en að einnig verði hægt að koma með óflokkað og flokkað sorp utan opnunartíma,“ segir í svarinu.

Ennfremur kemur fram að útfærsla og stefna stjórnvalda varðandi flokkun liggur ekki fyrir en umhverfisráðherra stefnir á að leggja fram á vorþingi frumvarp til breytinga á lögum um úrgangsmál. „Í þeim tillögum verður líklega lagt upp með skyldu á flokkun á heimilisúrgangi, samræmdar merkingar úrgangsflokka o.s.frv., en ekki liggur fyrir nánari útfærsla þess af hálfu ráðherra.“

Sjá nánar um spurningar Álfhildar og svör byggðarráðs HÉR

Fleiri fréttir