Opið hús hjá Oddfellow í dag
feykir.is
Skagafjörður
25.03.2023
kl. 08.07
Oddfellow stúkurnar á Sauðárkróki verða með opið hús í dag frá klukkan 13 til 15, þar sem gestum gefst kostur á að skoða húsakynnin, kynnast starfi stúkanna og þiggja léttar veitingar að Víðigrund 5.
Um klukkan 14 fer fram sérstök styrkveiting til nærsamfélagsins. „Hlökkum til að taka á móti ykkur í vináttu, kærleika og sannleika,“ segir í tilkynningu Rbst nr. 13 Eir og St. nr. 22 Sif.
Fleiri fréttir
-
Kristín Þórðardóttir skipuð í nýtt embætti sýslumanns
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 24.08.2026 kl. 13.25 oli@feykir.isKristín Þórðardóttir, sem starfað hefur sem sýslumaður á Suðurlandi sl. níu ár, hefur verið skipuð í nýtt embætti sýslumanns og er þá eini sýslumaður landsins. Í tilkynningu sem birtist sl. föstudag á vef Stjórnarráðsins segir að hún hafi tekið við stöðunni frá og með 21. ágúst. Fram kemur að starfsstöðvar hins nýja embættis verða óbreyttar við sameininguna og starfsfólk færist til hins nýja embættis. Ekki eru fyrirhugaðar umfangsmiklar breytingar á núverandi skipulagi þeirra eða þjónustuframboði.Meira -
Ólafur Bjarni varð Íslandsmeistari | Arney Sindradóttir skrifar
Dagana 20.-22. ágúst fór fram Íslandsmót unglinga í höggleik 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Golfklúbbur Skagafjarðar átti fimm glæsilega fulltrúa; Brynjar Morgan Brynjarsson, Sigurbjörn Darra Pétursson og Gunnar Atla Þórðarson sem kepptu í flokki 13-14 ára - og Ólaf Bjarna Þórðarson og Karl Goðdal Þórleifsson í flokki 12 ára og yngri. Strákarnir allir sem einn stóðu sig með prýði og voru klúbbnum til mikils sóma. Það fór svo að Ólafur Bjarni landaði sigri og þar með Íslandsmeistaratitli, sem er ekkert nema stórkostlegur árangur hjá dreng á tólfta aldursári. Þrotlaus vinna og þrautseigja liggur að baki, og uppskeran eftir því.Meira -
Súsanna Guðlaug tók þátt í FEIF Youth Cup 2026 | Ógleymanleg ferð til Þýskalands
Dagana 12.–20. júlí fór fram FEIF Youth Cup í Rieden í Þýskalandi. Á mótið koma ungir knapar alls staðar að úr heiminum til að keppa, læra hvert af öðru og kynnast nýju fólki. Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir frá Ríp 3 í Hegranesinu var hluti af íslenska hópnum og Feykir fékk hana til að segja frá ferðinni.Meira -
Mikilvægur sigur Stólanna í Fífunni í dag
Það var ljóst eftir jafntefli á Ólafsfirði um miðja síðustu viku að allir fjórir leikir Tindastóls sem eftir voru í 3. deildinni þetta sumarið yrðu í raun hreinir úrslitaleikir. Staðan á toppi deildarinnar er það jöfn, en fjögur lið berjast um tvö sæti í 2. deild, að það má hvergi út af bregða. Í dag mættu Stólarnir liði Augnabliks í Fífunni og tvö mörk frá Benna á lokakaflanum voru allt sem þurfti til að næla í stigin þrjú. Lokatölur 0-2.Meira -
Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins | Arna Lára Jónsdóttir skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 23.08.2026 kl. 20.07 oli@feykir.isLægri vextir, stöðugra verðlag og lægri framfærslukostnaður skipta heimili og fyrirtæki miklu máli. Það er því ekki skrýtið að þau mál séu fyrirferðarmikil í umræðunni um Evrópusambandið. Íslendingar borga hæstu vexti í Evrópu og við borgum mest fyrir matarkörfuna í annars frábæru landi. Já, þetta eru sterk rök fyrir því að segja JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst nk.Meira
