Opnunartíminn hjá Skíðasvæði Tindastóls í vetrarfríinu
Skíðasvæði Tindastóls áætlar að hafa opið allt vetrarfríið og því um að gera að kíkja á skíði með krakkana. Tala nú ekki um ef þið hafið aldrei farið því hægt er að leigja allan búnað á staðnum, bæði snjóbretti og skíði.
Opnunartíminn verður þannig að
15.-16. febrúar er opið frá 12-19,
helgina 17.-18. febrúar er opið frá 11-16,
vikuna 19.-23. febrúar er opið frá 12-19 og svo
helgina 24.-25. febrúar er opið frá 11-16.