Óvissa um hvað nýir búvörusamningar bera með sér
Viðræður á milli fulltrúa bænda og stjórnvalda vegna nýrra búvörusamninga hafa staðið yfir um nokkurra mánaða skeið. Í yfirlýsingu frá samninganefnd bænda kemur fram að samningagerð sé nú langt komin en henni er þó ekki lokið. „Samninganefndin mun á næstu dögum leggja allt kapp á að klára samningana svo hægt sé hefja kynningu á þeim í heild meðal bænda,“ segir í yfirlýsingunni. Að sögn formanns Félags kúabænda í Skagafirði tekur stjórnin hvorki afstöðu með eða á móti honum þar sem ekki er búið að kynna nýju drögin, bændur hafi þó áhyggjur af því að í honum sé ekki framleiðslustýring.
„Eins og staðan er, ef maður horfir á sölutölur, þá eru 133 milljónir lítrar af fitugrunni að seljast innanlands en það voru framleiddar 146 milljónir á síðasta ári. Núna í janúar var 11% meiri framleiðsla en í janúar í fyrra,“ sagði Róbert Örn Jónsson, formaður Félags kúabænda í Skagafirði, í samtali við Feyki. Hann sagði að þetta sé sá þáttur sem kúabændur í Skagafirði hafi áhyggjur af.
„Núna hefur verið ákveðið verð fyrir innanlandsmarkað og annað verð fyrir útflutning, sem hefur verið lægra. Í nýjum samningunum er gert ráð fyrir að það verði bara eitt verð, og þá meðaltal af þessu, og að þá muni afurðaverð lækka,“ sagði Róbert og útskýrði að kúabændur í Skagafirði eigi hlutfallslega meiri kvóta en annarsstaðar þar sem Kaupfélagið hafi staðið vel við bakið á bændum með því að kaupa kvóta inn á svæðið.
„Þegar nýi samningurinn kemur getur sá sem á kvóta fyrir alla sína framleiðslu í raun ekki aukið framleiðsluna, hann verður fyrir afurðatjóni og það lækkar verðið til hans.“ Róbert sagði óvíst hvort eitthvað komi þar á móti í nýju samningunum. „Það er þónokkur hópur sem er í þessari stöðu, sbr. umræðuna sem er búin að vera hjá kúabændum í Eyjafirði. Þeir hafa sett sig á móti þessu og vilja hafa framleiðslustýringuna áfram.“
Þessar áhyggjur um framtíð mjólkurframleiðslu í firðinum segir Róbert hafa verið kveikjuna að því að óskað var eftir fundi með þingmönnum Norðvesturkjördæmis, sá fundur fór fram sl. mánudag. „Ef kúabændum í kjördæminu fer að fækka og illa fer, þá fer byggðin í sveitinni hallandi. Þetta eru áhyggjurnar sem við höfum, það eru svo miklar breytingar í nýja samningnum og óvissan er svo mikil,“ sagði Róbert
Nánari umfjöllun má finna í Feyki vikunnar þar sem einnig er rætt við Ólaf Sigmarsson framkvæmdastjóra verslunarsviðs KS og Stefán Vagn Stefánsson formann byggðaráðs Svf. Skagafjarðar um búvörusamningana.