Róm var orðin nokkurs konar draugaborg

Almar Orri og Jenný í flugvélinni á leiðinni heim frá Ítalíu. AÐSENDAR MYNDIR
Almar Orri og Jenný í flugvélinni á leiðinni heim frá Ítalíu. AÐSENDAR MYNDIR

Feykir gerði sér lítið fyrir og setti sig á dögunum í samband við Jennýju Leifsdóttur, leikskólaliða og húsmóður í Vesturbænum. Tilefnið var að hún, eiginmaðurinn og yngsti sonurinn forðuðu sér frá COVID-undirlagðri Ítalíu í síðustu viku en þau höfðu dvalið í Róm frá því á haustmánuðum. 

Jenný er uppalin á Sauðárkróki, dóttir Freyju og Leifs heitins í Byrgisskarði, en hún er gift Atla Frey Sveinssyni, ráðgjafa, sem sömuleiðis er Króksari, yngsti sonur Imbu Jós og Svenna heitins Friðvins. Jenný og Atli eiga þrjú börn. Fyrstan skal telja Darra Frey sem er 25 ára viðskiptafræðingur hjá Lucinity og þjálfari mfl. kvenna í körfubolta hjá Val. Þá Gunnhildi Báru sem er 21 árs nemi í hag- og sálfræði og körfuboltaleikmaður hjá St. Lawrence University í New York fylki í Bandríkjunum. Loks er það Almar Orri, 15 ára nemi í IVLA og körfuboltaleikmaður hjá Stella Azzurra í Róm. „Almar Orri fékk boð um að æfa og spila með körfuboltaliðinu Stella Azzura tímabilið 2019–2020, eftir að hafa staðið sig vel með U15 landsliði Íslands og ákváðum við að fylgja honum út,“ segir Jenný. „ Við fluttum út 28. ágúst 2019 og til stóð að vera út júní 2020.“

Hvernig gekk stráknum í körfunni? „Almari Orra gekk mjög vel. Auðvitað var það ákveðið sjokk að koma úr íslenskum körfubolta og æfingaumhverfi í líklega eitt af fimm bestu U16 ára liðum Evrópu. Æfingarnar voru gríðarlega miklar eða að lágmarki þrjár æfingar á dag í samtals um fimm klukkutíma, sex daga vikunnar. Hann náði að festa sig í sessi í U16 ára liðinu og fór með því í skemmtilegar keppnisferðir á sterk mót, t.d. til Tenerife, Ungverjalands, Barcelona og Aþenu. Almennt gekk þeim mjög vel og voru að spila á mótum með sterkustu liðum Evrópu, s.s. Real Madrid, Bayern Munich og Barcelona ásamt landsliðum frá hinum ýmsu löndum og undantekningarlaust unnu þeir mótin eða spiluðu til úrslita. Almar Orri stefnir fyrst og fremst á að bæta sig sem leikmaður á hverri æfingu og vonandi að fá tækifæri til þess að spila körfubolta í háskólaliði í Bandaríkjunum í framtíðinni.“

Er ekki draumurinn hjá honum að spila með liði Tindastóls – uppeldisfélagi foreldranna? „Almar Orri hefur alltaf æft og spilað með KR og er gríðarlega mikill KR-ingur. Það má eiginlega segja að það sé svart hvítt blóð í honum. En körfuboltinn er nú þannig að menn vita aldrei hvar þeir enda á að spila og innst inni myndi hann nú hafa gaman af því að gleðja ömmu sína, Bjögga frænda og Halla frænda með því að spila í Síkinu.“

Hvernig gekk að eyða dögunum á Ítalíu? „Í fyrsta lagi er Róm algjörlega stórfengleg borg sem allir ættu að heimsækja einhverntíman á ævinni. Við bjuggum í mjög skemmtilegu hverfi sem heitir Prati og er miðsvæðis í borginni. Við vorum fimm mínútur að labba að Vatíkaninu og tíu mínútur niður í gamla bæinn. Í Prati er kaffihús á hverju einasta götuhorni og fullt af litlum skemmtilegum verslunum og veitingastöðum. Hverfið iðar af lífi frá morgni til kvölds og lítið mál að láta daginn líða. Þar sem Almar Orri bjó ekki hjá okkur,  kom yfirleitt bara heim aðra hverja helgi, og Atli að vinna og á miklum ferðalögum vegna vinnunar, þá ákvað ég strax að nýta tímann vel til þess að skoða borgina og kynnast henni.“ 

Jenný segir að venjulegur dagur hafi vanalega hafist á því að hún hafi drukkið mikið ítalskt caffé fyrir hádegi og svo haldið af stað í göngu. „Ég skoðaði bókstaflega alla borgina í bak og fyrir á tveimur jafnfljótum og gekk aldrei minna en 12 km á dag. Oft hafði ég bók með í för og settist niður á bekk eða á kaffihús, las og naut mannlífsins og þess sem fyrir augu bar. Svo er það náttúrulega þannig að hvar sem maður býr verða þessir hversdagslegu hlutir svipaðir, eins og t.d. að fara í ræktina, versla inn til heimilisins, borga reikningana o.s.frv. Þar sem við vorum mikið bara tvö og verðlagið á veitingahúsum í Róm, sérstaklega ef farið er aðeins frá helstu túristastöðunum, allt annað en við eigum að venjast á Íslandi, fórum við mikið út að borða á einhverja af óteljandi og frábærum veitingastöðum borgarinnar. Veðurfarið er líka þannig að heitfengir Íslendingar geta auðveldlega borðað úti allan ársins hring og gaman að uppgötva hvað stórborgin hafði upp á að bjóða í matarmenningu. Um helgar nýttum við svo oft tækifærið og leigðum okkur bíl eða reiðhjól og skoðuðum það sem Mið- og Suður-Ítalía hafa upp á að bjóða. 

Hvenær urðuð þið fyrst vör við tal um veikindi á Ítalíu vegna COVID-19? „Við fylgdumst að sjálfsögðu vel með fréttum og heyrðum því talað um þetta í janúar, en lengi framan af var þetta mjög einangrað við norður hluta Ítalíu, a.mk. í allri umfjöllun.“ 

Hvernig var andrúmsloftið og lífið í Róm nú síðustu vikurnar áður en þið fóruð heim? „Í rauninni gekk lífið sinn vanagang í Róm alveg ótrúlega lengi. Það var lögð áhersla á að veiran væri fyrst og fremst fyrir norðan og virtust Rómverjar hafa mjög litlar áhyggjur af þessum málum. Síðan fara að greinast nokkur smit í Lazio-héraði en fólk var samt alveg ótrúlega rólegt. Það er í rauninni ekki fyrr en í mars sem þetta fer að hafa einhver teljandi áhrif í borginni og þegar við förum heim þann 14. mars má segja að Róm hafi verið orðin nokkurs konar draugaborg.“

Á hvaða tímapunkti ákváðuð þið að snúa heim til Íslands? „Við ákáðum að snúa heim í kringum 10. mars. Starfsemin hjá liðinu hans Almars Orra var orðin mjög lítil, ljóst að þeir myndu ekki spila fleiri leiki og aðeins hluti af liðinu mátti æfa. Auk þess var verið að loka skóla dóttur okkar í Bandaríkjunum og hún á leiðinni heim og orðið erfitt fyrir Atla að sinna vinnu á Íslandi vegna sóttkvíar og ferðatakmarkana. Okkur fannst því skynsamlegast í stöðunni að binda enda á þetta Ítalíu ævintýri okkar og drífa okkur heim.“

Voruð þið nálægt því að lokast inni á Ítalíu og komast ekki heim? „Ekki kannski að lokast inni en það var erfitt að finna og bóka flug og alls voru fjögur flug sem við áttum að vera í felld niður. Allt gekk þó vel að lokum.“ 

Jenný segir að það hafi verið gott að koma heim en nú eru þau að sjálfsögðu í sóttkví í Vesturbænum. „Við erum fjögur saman í sóttkví og tölum við Darra Frey og aðra fjölskyldumeðlimi í gegnum netið. Við reynum að halda rútínu, þ.e.a.s. vinna, læra og hreyfa okkur. Svo er horft á gamla KR leiki í sjónvarpinu, en það virðist vera það eina sem allir eru sammála um að horfa á,“  segir Jenný eldhress og heldur áfram. „Ég tók þá ákvörðun að þegar ég væri búin að búa í Vesturbænum lengur en ég gerði á Sauðarkróki, þá myndi ég skipta frá Tindastóli og yrði gallharður KR-ingur.“ Það eru tvö ár síðan hún náði þeim áfanga.

- - - -
Hér að neðan má sjá myndir sem Jenný sendi Feyki til birtingar. Síðasta myndin sýnir Almar Orra í Róm síðasta kvöldið þeirra á Ítalíu – úti á miðri götu sem vanalega iðar af lífi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir