Síðasta tækifæri að skrá sig á Samgönguþing MN
Í dag er síðasta tækifæri að skrá sig á Samgönguþing MN sem haldið verður í Hofi á morgun. „Við hvetjum alla til að nota tækifærið, hlusta á fróðleg erindi og taka þátt í umræðum,“ segir í fréttatilkynningu. Fundarstjóri er Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.
Aðgangur er ókeypis en allir þurfa að skrá sig. Dagskrá þingsins og skráningarform er að finna á heimasíðu Markaðsstofu Norðurlands.
Dagskrá:
Setning samgönguþings
- Höskuldur Þór Þórhallsson, formaður samgöngunefndar Alþingis
Þarfagreining á áningarstöðum Strætó á Norðurlandi fyrir ferðamenn
- Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri
Strætó og ferðaþjónusta
- Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs
Hvernig nýtist strætó ferðamönnum?
- Geir Gíslason, framkvæmdastjóri Akureyri Backpackers
Pallborðsumræður
Kaffihlé
Skemmtiferðaskip við Ísland
- Edward H. Huijbens, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð ferðamála og prófessor við HA
Skemmtiferðaskip á Norðurlandi
- Aníta Elefsen, rekstrarstjóri Síldarminjasafns Íslands
Farþegar af skemmtiferðaskipum, hverju skila þeir?
- Yngvi Ragnar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Sel-Hótel Mývatns
Álag á náttúruverndarsvæði og leiðir til að draga úr umhverfisáhrifum
- Davíð Örvar Hansson, svæðislandvörður Umhverfisstofnunar á norðausturlandi
Pallborðsumræður
12:30 - 13:30 Hádegisverður í boði Isavia
Samgöngustofa og ferðaþjónusta
- Þórólfur Árnason, forstjóri Samgöngustofu
Innanlandsflugvellir - hlutverk og stefna
- Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri flugvallasviðs Isavia
Grundvöllur fyrir vetrarferðamennsku
- Sævar Freyr Sigurðsson, eigandi Saga Travel
Erlendir ferðamenn í innanlandsflugi
- Ingi Þór Guðmundsson, sölu- og markaðsstjóri Flugfélags Íslands
Pallborðsumræður
15:00 Þingslit - Léttar veitingar í boði Eyþings