Síðasti skráningardagurinn á Mannamót
Mannamót eru handan við hornið og fresturinn rennur út í dag. „Sýningin Mannamót sem haldin er fimmtudaginn 21. janúar í flugskýli Ernis er kjörinn vettvangur fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni til þess að koma vöru sinni á framfæri,“ segir í fréttatilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.
Sýningin er í boði fyrir samstarfsaðila MN og skráningarfrestur er til 15. janúar. „Skráning er hérna www.markadsstofur.is ekki láta þetta tækifæri framhjá þér fara. Mannamót er kjörin staður fyrir þig til þess að hitta þína viðskiptavini í ferðaþjónustu,“ segir loks í tilkynningu.