Siglufjarðarvegur þungfær

Hálkublettir, hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Norðurlandi og víðast hvar snjókoma eða éljagangur og sumstaðar einnig skafrenningur. Siglufjarðarvegur er þungfær og eins er. Eins er sumstaðar þæfingur eftir nóttina en alls staðar er verið að moka og hreinsa vegi.

Norðan 8-13 m/s og él er á Stöndum og Norðurlandi vestra, frost 3 til 10 stig. Hægari og úrkomulítið á morgun, talsvert frost.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:

Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og víða bjartviðri, en él úti við NA-ströndina. Frost yfirleitt 5 til 15 stig, kaldast í innsveitum NA-lands. Vaxandi austanátt og fer að snjóa á SV-landi um kvöldið.

Á sunnudag:

Austan 18-23 m/s og víða snjókoma, heldur hægari vindur og él á NA-verðu landinu. Frost 1 til 13 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.

Á mánudag:

Norðan og norðaustan 10-18 m/s. Þurrt á S- og SV-landi, annars snjókoma eða él. Frost 0 til 10 stig, mildast við SA-ströndina.

Á þriðjudag:

Austlæg átt og víða él, en snjókoma um tíma S-lands. Kalt í veðri.

Á miðvikudag:

Vaxandi austanátt með snjókomu, en slyddu eða rigning S-til síðdegis. Hlýnandi í bili.

Á fimmtudag:

Snýst í norðanátt með snjókomu, einkum N-til.

Fleiri fréttir