Sinubruni í Blönduhlíð
Á Facebook-síðu Brunavarna Skagafjarðar er greint frá því að útkall hafi borist vegna sinubruna við bæinn Vagli í Blönduhlíð í Skagafirði. Slökkviliðsmenn frá útstöðinni í Varmahlíð sinntu verkefninu sem var á um 100 fermetra svæði nálægt fjósinu á bænum. Fram kemur í færslunni að slökkvistarf hafi gengið vel fyrir sig.
„Er þetta annað útkallið hjá BS vegna sinubruna á rúmlega viku. Eins og komið hefur fram í fréttum undanfarna daga er gróður mjög þurr og aðstæður óhagstæðar víðast hvar á landinu komi til þess að slökkva þurfi eld í sinu eða gróðri ýmis konar. Sinubrenna er að öllu jöfnu óheimil! Förum varlega og sýnum ábyrgð,“ segir í færslu Brunavarna Skagafjarðar.