Skagfirska mótaröðin að hefjast

Spenntir áhorfendur fylgjast með skagfirsku mótaröðinni 2014. Mynd: KSE
Spenntir áhorfendur fylgjast með skagfirsku mótaröðinni 2014. Mynd: KSE

Hin árlega Skagfirska mótaröð hefst í kvöld, miðvikudagskvöldið 24. febrúar. Á þessu fyrsta móti vetrarins verður keppti í fjórgangi V5 í öllum flokkum; 1. flokki, 2. flokki, ungmenna- og barnaflokkum.

Riðið er tölt (frjáls ferð), brokk (hæg milliferð), fet (meðal ferð) og stökk (hæg milliferð). Aðgangur er ókeypis fyrir áhorfendur á mótaröðina sem fer fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum við Sauðárkrók.

Skráning fer fram á svadastadir@svadastadir.is og senda þarf nafn á knapa, kennitölu og IS númer hests. Skráningu líkur þriðjudaginn 23. febrúar kl. 18:00. Skráning kostar 1.500 krónur fyrir ungmenni og fullorðna 1.000 krónur fyrir börn og unglinga.

Fleiri fréttir