Smávirkjanasjóður auglýsir eftir umsóknum

Smávirkjanasjóður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að styrkja fyrstu skrefin í rannsóknum á mögulegum rennslisvirkjunum undir 10 MW að stærð á Norðurlandi vestra. 

Sjóðurinn veitir styrki til: 

  • Skref 1: Frummat smávirkjana.
  • Skref 2: Mat á virkjanlegu rennsli, frummat hönnunar og byggingarkostnaðar. 

Að þessu sinni er auglýst eftir umsóknum í Skref 1: Frummat smávirkjana. 

Öll gögn varðandi umsóknarferlið er að finna á heimasíðu SSNV.  Nánari upplýsingar veitir Ingibergur Guðmundssoní síma 892 3080 eða á ingibergur@ssnv.is

Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2020 og skulu umsóknir sendar á netfangið: ssnv@ssnv.is.   

 

 

Fleiri fréttir