Sögustund á Víðimýri
Félagar á Sturlungaslóð standa fyrir sögustund á Víðimýri í kvöld kl 20:00. Sögumaður er Þór Hjaltalín. Þetta er síðasta sögustundin í sumar, en þær hafa verið á hverju miðvikudagskvöldi í júlí. Aðgangur er ókeypis og eru allir boðnir velkomnir.
Í ágúst verður svo sögudagur og Ásbirningablót.
