Sóldísir heimsækja Blönduós

Kvennakórinn Sóldís. MYND.BRÍET GUÐMUNDSDÓTTIR
Kvennakórinn Sóldís. MYND.BRÍET GUÐMUNDSDÓTTIR

Á morgun þriðjudaginn 12.mars kl. 20:00 mun Kvennakórinn Sóldís í Skagafirði syngja lögin hans Magga Eiríki í Blönduóskirkju.

Söngstjóri Sóldísanna er Helga Rós Indriðadóttir sem jafnframt syngur einsöng með kórnum, það gera þær systur Gunnhildur og Kristvina Gísladætur líka ásamt Elínu Jónsdóttur. Undirleikari og hljómsveitarstjóri er Rögnvaldur Valbergsson, og með honum eru þeir Guðmundur Ragnarsson á gítar, Steinn Leó Sveinsson á bassa og Sigurður Björnsson á trommum. 



Fleiri fréttir