Sorptunnum dreift á heimili í Skagafirði næstu daga

Í framtíðinni má gera ráð fyrir því að brúna hólfið hverfi og brún tunna komi í stað þess og verða þá fjórar tunnur í stað tveggja eins og nú er. Mynd af skagafjordur.is.
Í framtíðinni má gera ráð fyrir því að brúna hólfið hverfi og brún tunna komi í stað þess og verða þá fjórar tunnur í stað tveggja eins og nú er. Mynd af skagafjordur.is.

Um áramót tóku gildi breytingar á lögum um meðhöndlun úrgangs á Íslandi sem hafa umtalsverð áhrif á sorphirðu um land allt. Sveitarfélagið Skagafjörður setti á heimasíðu sína upplýsingar um þær breytingar sem í vændum eru í Skagafirði á næstu vikum.

Þar kemur fram að með lögunum verður m.a. innleitt samræmt flokkunarkerfi í fjóra úrgangsflokka; pappír og pappa, plastumbúðir, lífrænan eldhúsúrgang og almennt sorp. Samhliða verður tekið upp nýtt kerfi við innheimtu gjalda fyrir meðhöndlun úrgangs sem miðar að því að greitt sé fyrir það magn sem er hent (pay as you throw – borgað þegar hent er). Sú breyting hefur orðið að sveitarfélög fá greitt frá Úrvinnslusjóði fyrir sérsöfnun á plasti, pappír og gleri. Sjóðurinn greiðir eftir því magni sem safnast af hverjum flokki og því skiptir miklu máli fyrir sveitarfélagið og íbúa þess að vel sé flokkað.

Þann 1. apríl nk. tekur Íslenska gámafélagið við sorphirðu í Skagafirði og um leið við breyttri og aukinni þjónustu en tekin verður upp samræmd flokkun í dreifbýli sem og þéttbýli í anda niðurstöðu skoðanakönnunar meðal íbúa í dreifbýli þannig að heimilissorp í fyrrgreindum fjórum úrgangsflokkum verður sótt til allra heimila í Skagafirði.

„Breytingin hjá okkur í Skagafirði verður sú að þrjár tunnur verða við hvert heimili, auk brúna hólfsins fyrir lífræna úrganginn (matarleifar), í stað tveggja. Nýjar tunnur verða afhentar á öll heimili, ein fyrir pappír og pappa, ein fyrir plastumbúðir og ein fyrir blandaðan úrgang, auk þess að haldið verður áfram með brúna hólfið fyrir lífrænan úrgang fyrst um sinn. Í framtíðinni má gera ráð fyrir því að brúna hólfið hverfi og brún tunna komi í stað þess. Stóra breytingin er því sú að ekki má lengur flokka pappír, pappa og plast í sömu tunnuna eins og gert hefur verið í þéttbýli Skagafjarðar um árabil.

Nú er komið að því að innleiða þetta samræmda flokkunarkerfi í Skagafirði. Tunnum verður dreift á heimili næstu daga og starfsfólk Íslenska gámafélagsins mun svo ganga í hús til að kynna íbúum nýja flokkunarkerfið. Hvetjum við íbúa til þess að taka vel á móti þeim og endilega spyrja spurninga sem upp kunna að koma. Flokkunarhandbók mun einnig berast með pósti á öll heimili í Skagafirði í næstu viku með nákvæmum upplýsingum um hvernig skal flokka, upplýsingum um grenndarstöðvar og móttökustöðvar, ásamt öðrum handhægum upplýsingum,“ segir í tilkynningu sveitarfélagsins. Auk þessa verða settar upp grenndarstöðvar á þéttbýlisstöðum í sveitarfélaginu til söfnunar á málmum, gleri og textíl. Öðrum flokkum á að skila á móttökustöðvar, en í sveitarfélaginu eru reknar þrjár móttökustöðvar: Flokka á Sauðárkróki, Farga í Varmahlíð og móttökustöð á Hofsósi. Þar er tekið á móti öllum úrgangi og endurvinnsluhráefni.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir