SSNV leitar að fyrirtækjum til þátttöku í stafrænni vegferð - Digi2Market

SSNV leitar að tíu fyrirtækjum til að taka þátt í Norðurslóðaverkefni sem kallast Digi2Market. Er verkefninu ætlað að taka á ýmsum áskorunum sem fyrirtæki á jaðarsvæðum kunna jafnan að glíma við, svo sem smæð markaðar, fjarlægð frá markaði og einangrun. Leitað er að fyrirtækjum sem vinna með markaðssetningu, samskipti og nýja tækni og eru áræðin og framsækin og hafa vilja og getu til að þróa núverandi rekstur og markaðssetningu með því að nýta nýja stafræna tækni og hafa sjálfbærni að leiðarljósi.

Á vef SSNV segir að verkefnið snúist að mestu leyti um heildstæða stafræna tækni (e. immersive technologies), þá 360 gráðu myndbönd, aukinn raunveruleika og sýndarveruleika og hvernig nýta megi þessa tækni í markaðssetningu. Markmið verkefnisins er að hjálpa litlum og meðalstórum fyrirtækjum á jaðarsvæðum að auka markaðshlutdeild sína með stafrænni tækni. Með stafrænni tækni er hægt að koma vörumerkinu og sögu fyrirtækisins áleiðis til viðskiptavinanna og aðlaga það að markaðsaðgerðum fyrirtækisins. Þessi tækni getur einnig gefið fólki möguleika á að prófa vöru/þjónustu áður en kaup fara fram. 

Verkefnið leggur enn fremur upp með að:

  • koma stafrænni tækni í auknum mæli inn í fyrirtækin
  • búa til markaðstólabox e.marketing toolkit fyrir fyrirtæki
  • byggja stafræna borg (vefsíðu)
  • búa til umhverfisvænt skapalón fyrir fyrirtæki til að leiða þau áfram í sinni umhverfisvitund. 

SSNV leitar að 10 fyrirtækjum til að taka þátt í verkefninu. Fyrirtækin sem taka þátt fá

  • aðstoð við að þróa reksturinn áfram í formi ráðgjafar
  • aukna þekkingu á hvernig sjálfbærni getur aukið virði fyrirtækisins/vöru/þjónustu
  • aukin þekking á því hvernig nota má sögu (e.storytelling) í markaðssetningu og auglýsingum
  • reynslu í því hvernig nýta má sýndarveruleika, aukinn veruleika eða 360 gráðu myndbönd í markaðssetningu
  • tækifæri til að tengjast öðrum alþjóðlegum tengiliðum og tengslanetum, dæmi um þróunarleiðir hjá öðrum fyrirtækjum, lært af reynslu annarra.

Hvernig fyrirtæki passa best inn í verkefnið?

  • áræðin og framsækin fyrirtæki sem hafa vilja og getu til að þróa núverandi rekstur og markaðssetningu með því að nýta nýja stafræna tækni og hafa sjálfbærni að leiðarljósi
  • fyrirtæki sem vinna með markaðssetningu, samskipti og nýja tækni
  • hvert fyrirtæki verður metið fyrir sig til þátttöku í verkefninu

Hvað er gert með fyrirtækjunum?

  • mat á umhverfismálum fyrirtækisins og greining á umhverfisstöðlum
  • greining á viðskiptamódeli fyrirtækisins með sjálfbærni að leiðarljósi
  • uppbygging á markaðssetningu fyrirtækisins byggð á punktunum að ofan
  • tilraunir með sýndarveruleika/aukinn veruleika/360 gráðu myndbönd og eftirfylgni með árangri þess.

 

Frekari upplýsingar ásamt skráningu í verkefnið er hjá Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur, atvinnuráðgjafa SSNV, á netfangið sveinbjorg@ssnv.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir