Styrktarbingó Kormáks/Hvatar á fimmtudaginn

Meistaraflokkur Kormáks/Hvatar heldur styrktarbingó í félagsheimilinu á Blönduósi fimmtudaginn 13. júlí kl: 21:00 og er opið hús til 01:00. Aðgangseyrir er 1500 kr, innifalið í því er eitt spjald og happadrættismiði sem dregið verður út úr. Auka spjöld kosta 500 kr.

Fullt af flottum vinningum í boði og uppboð á treyjum.

„Það verður opin bar og viljum við þakka þeim sem hafa gefið vinninga og sérstakar þakkir til Hafa gaman ehf fyrir lán á félagsheimilinu,“ segir í tilkynningu frá meistaraflokknum.

Fleiri fréttir