Styrktarreikningur fyrir dætur Elísabetar Sóleyjar
Stofnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir dætur Elísarbetar Sóleyjar Stefánsdóttur, sem lést á Sauðárkróki sl. sunnudag. Elísabet lætur eftir sig þrjár dætur, þær Hörpu Katrínu, Sólveigu Birnu og Rebekku Hólm Halldórsdætur. Þeir sem vilja leggja þeim lið geta lagt inn á eftirfarandi reikning: 0323-13-302434 og kt: 160373-3429. Fjárhaldsmaður þeirra er Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir.
Elísabet var áberandi í störfum sínum í ritstjórn Innihald.is og skrifaði greinar um hugðarefni sín. Hún var tómstunda- og félagsmálafræðingur að mennt og var að ljúka MA-námi í sálfræði í uppeldis- og menntunarfræðum með áherslu á áhættuhegðun, forvarnir og lífssýn. Samhliða meistaranámi starfaði Elísabet Sóley sem ráðgjafi í eineltismálum og við afleysingarstörf á meðferðarheimilinu Stuðlum.