Sveitarfélagið Skagaströnd óskar eftir tilnefningum

Á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagastrandar segir að sveitarfélagið ætli að veita viðurkenninguna Eldhugi/eldhugar ársins 2023 og óska því eftir tilnefningum frá íbúum. Tilnefna má einstaklinga, félagasamtök og fyrirtæki og verður viðurkenningin veitt á Þorrablóti Kvenfélagsins Einingar í Fellsborg þann 17. febrúar.

Íbúar sveitarfélgsins eru hvattir til að senda inn tilnefningar HÉR 

Fleiri fréttir