Sýningin Á söguslóð Þórðar kakala formlega opnuð í gær
Það var margt um manninn í gær þegar forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, klipptu á borða og opnuðu formlega sýningu fjórtán alþjóðlegra listamanna sem sköpuðu margbrotin verk um hina stórkostlegu sögu Sturlunga, í Kakalaskála á Kringlumýri í Skagafirði. Ber hún heitið Á söguslóð Þórðar kakala.
Reyndar má segja að listamennirnir hafi verið fleiri því listilega hlaðnir grjótveggir, sem afmarka básana í sýningarskálanum, voru gerðir af þeim Sigurði Hansen og Jóhanni Guðmundssyni, Jóa í Stapa, auk þess sem Siggi á snilldarlega ort kvæði sem ber nafnið Kakali í Konungsgarði.
Í upphafi dagskrár upplýsti Sigurður hvernig vinna hans að þeim verkefnum sem tengjast Sturlungum og hans manni, Þórði Kakala, hófust en sú vinna hefur staðið yfir í um áratug. Voru þau hjón, Sigurður og María Guðmundsdóttir, á leið niður afleggjarann en Sigurður, hafði sett fram tilgátu um það hvernig og hvar bardaginn hafi átt sér stað en átti ekki auðvelt með að útskýra það nákvæmlega. Minntist hann þá á það við konu sína að honum hafi dottið í hug að sviðsetja bardagann. „Já, blessaður gerðu það,“ svaraði hún þá. Úr varð eitt stærsta útilistaverk landsins sem staðsett er steinsnar frá bænum.
Sýningin Á söguslóð Þórðar kakala samanstendur af 30 listaverkum og hljóðleiðsögn sem sýnir fólk, atburði og staði er tengjast lífi Þórðar kakala sem var einn mesti kappi Sturlungaaldarinnar.
Eins og Guðmundur Stefán, sonur Sigurðar og Maríu, sagði í dagskrárkynningu þá er engin skemmtun fullkomin í Skagafirði öðruvísi en Karlakórinn Heimir hefji upp raust sína. Sungu þeir nokkur lög og meðal annars Upp skal á kjöl klífa eftir Þórir Jökul sem orti á dánarbeði sínu en hann var veginn við Miklabæ eftir Örlygsstaðabardaga. Stefán R. Gíslason, söngstjóri, samdi lag við kvæðið og sjá má flutning Heimismanna hér fyrir neðan.
Tengd frétt: Opið hús í Kakalaskála