Þóranna Ósk íslandsmeistari í sjöþraut
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
22.07.2014
kl. 16.36
Meistaramót Íslands í fjölþrautum frjálsíþrótta fór fram á Laugardalsvellinum í Reykjavík helgina 19.-20. júlí.
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, Tindastól/UMSS, varð Íslandsmeistari í sjöþraut kvenna, hlaut 4066 stig. Þóranna var eini keppandi UMSS á mótinu. Úrslit mótsins er að finna á vef Frjálsíþróttasambands Íslands.
Fleiri fréttir
-
Innviðaskuld íþróttamannvirkja í Skagafirði | Indriði Grétarsson skrifar
Nú þegar líður að sveitastjórnarkosningum er vel við hæfi að velta fyrir sér og varpa aðeins ljósi á þörf er varðar uppbyggingu á íþróttamannvirkjum í Skagafirði og í raun þeirri miklu innviðaskuld sem er komin. Eitthvað sem margir hafa verið að velta fyrir sér enda ætti góð íþróttaaðstaða sem uppfyllir kröfur þeirra íþróttagreina sem stundaðar eru í Skagafirði að vera ein af grunnstoðum samfélagsins sem styður við marga þætti er snýr félagslegum, andlegum og líkamlegum þætti fólks á öllum aldri. Aðgangur að fjölbreyttum íþróttagreinum er lykilþáttur í því, margar greinar þjálfa líkama og hreyfanleika fólks á meðan aðrar þjálfa andleguhliðina. En margir gera sér ekki endilega grein fyrir því hversu mikil í umsvifum þessi mál eru orðin og hvað þarf að gera.Meira -
Nú er hægt að skoða seli í sýndarveruleika
Næstkomadi sunnudag 29. mars verður sunnudagur á safni, sem er samstarfsverkefni safna og setra og sýninga á Norðurlandi vestra sem skiptast á að opna dyrnar fyrir íbúum og gestum. Selasetur Íslands, Veslunarminjasafnið, Gallerí Bardúsa og Byggaðsafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum verða með opið nk. sunnudag.Meira -
Vonskuveður í dag og á morgun
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 26.03.2026 kl. 08.59 oli@feykir.isÞað er spáð vonskuveðri á landinu í dag en raunar er reiknað með að versta veðrið verði á höfuðborgarsvæðinu og sunnanlands. Hér á Norðurlandi vestra er gul veðurviðvörun frá því um kl. 10 og stendur hún til kl. 16 í dag. „Austan og suðaustan 15-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s, hvassast austantil. Einnig má búast við snjókomu og skafrenningi með slæmu skyggni og versnandi færð. Varasamt ferðaveður,“ segir í viðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra.Meira -
Framsókn vill ráðast í uppbyggingu íþróttamannvirkja á Sauðárkróki
Framboðslisti Framsóknar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar vinnur nú markvisst að mótun stefnu næsta kjörtímabils. Eitt af forgangsmálum listans verður að hefja nauðsynlega uppbyggingu íþróttamannvirkja norðan við núverandi íþróttahús á Sauðárkróki.Meira -
Stólastúlkur nældu í sjöunda sætið í Bónus deildinni
Stólastúlkur tóku á móti liði Hamars/Þórs í lokaumferð Bónus deildar kvenna í Síkinu í kvöld. Lið Tindastóls hefur vaxið eftir því sem á tímabilið hefur liðið og það sýndi sig því stelpurnar okkar sigldu fram úr gestunum í upphafi síðari hálfleik og því gátu þær sunnlensku ekki svarað. Lokatölur voru 90-68 og með sigrinum lyftu Stólastúlkur sér upp fyrir lið Stjörnunnar og enduðu í sjöunda sæti deildarinnar.Meira
