Þórarinn Eymundsson er liðstjóri Hrímnis
Meistaradeild Norðurlands kynnir annað lið KS-Deildarinnar 2016 til leiks en keppnin hefst þann 17. febrúar nk. Það eru sigurvegararnir frá því í fyrra, lið Hrímnis. Það skipa; Þórarinn Eymundsson liðstjóri, Valdimar Bergstað, Líney María Hjálmarsdóttir og nýliðinn Helga Una Björnsdóttir sem tekur sæti Harðar Óla.
„Þetta sigursæla lið virðist ógnar sterkt og mun ábyggilega gera atlögu að titlinum í ár,“ segir í fréttatilkynningu.
Keppniskvöld KS-Deildarinnar eru:
- 17. febrúar - Fjórgangur
- 2. mars - Fimmgangur
- 16. mars - Tölt
- 30. mars - Gæðingafimi
- 6. apríl - Slaktaumatölt og skeið