Þórður Ingi vann þriðja Kaffi Króks mótið

A-deildin. Mynd tekin af Facebook-síðu PKS
A-deildin. Mynd tekin af Facebook-síðu PKS
Þriðjudaginn 12. mars var þriðja mótið í Kaffi Króks mótaröðinni haldið í aðstöðu Pílukastfélags Skagafjarðar og tóku 17 keppendur þátt í þetta sinn. Spilað var í þrem riðlum og stóð Þórður Ingi Pálmarsson uppi sem sigurvegari í A-riðli, Reynir Hallbjörnsson vann B-deildina og Andri Þór Árnason vann C-deildina. Hæsta útskot kvöldsins átti svo hinn ungi Axel Arnarsson með 121 stig.
 
Til hamingju með sigurinn Þórður Ingi, Reynir og Andri Þór. Virkilega gaman að sjá svona marga taka þátt í þetta skiptið.
 
 
 
 
   
 
 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir