Þriðja umferð í Kaffi Króks mótaröðinni í pílu var í vikunni

Þriðja innanfélagsmót Pílukastfélags Skagafjarðar þetta haustið var sl. þriðjudag og mættu 16 einstaklingur til leiks. Keppt var í þrem deildum þar sem niðurröðun í deildir fót eftir gengi hvers og eins á öðru móti sem haldið var miðjan október.
Sigurvegari í efstu deildinni var Arnar Geir Hjartarson. Í annarri deild sigraði Atli Víðir og í þeirri þriðju sigraði Albert Hansson. Á mótinu var flott stemning og allir skemmtu sér vel.
Leikmenn sem tóku þátt í 2. deildinni
Leikmenn sem tóku þátt í 3. deildinni