Tjaldsvæðin opna í Skagafirði
Nú er sumarið rétt handan við hornið og kominn tími á að taka til grillið, klappstólana og ferðavagnana. Tjaldsvæðin í Skagafirði eru í óða önn að undirbúa sig fyrir gesti sumarsins og búið er að opna tjaldsvæðin á Hofsósi og í Varmahlíð. Tjaldsvæðið á Hólum í Hjaltadal mun opna seinustu helgina í maí, en unnið er að bættri drenlögn á tjaldsvæðinu á Sauðárkróki en stefnt er að því að opna það sem fyrst.
Það er því ekki eftir neinu að bíða en að skella sér í útilegu í Skagafirði, því bongóblíðan getur brostið á hvenær sem er.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um tjaldsvæðin í Skagafirði inni á heimasíðu Tjöldum í Skagafirði.
/SMH