Tólf milljónir af 647 til ferðamála á Norðurlandi vestra

Styrkur fékkst til lagfæringa á göngustíg, stækkunar bílaplans og
merkinga á selaskoðunarstað við Illugastaði á Vatnsnesi. Mynd/BÞ
Styrkur fékkst til lagfæringa á göngustíg, stækkunar bílaplans og merkinga á selaskoðunarstað við Illugastaði á Vatnsnesi. Mynd/BÞ

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur staðfest tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða um úthlutun vorið 2016. Að þessu sinni var sérstaklega horft til að bæta öryggi á ferðamannastöðum. Á vef Atvinnuvegaráðuneytisins kemur fram að alls eru veittir styrkir til 66 verkefna hringinn í kringum landið, þar af eru fjögur á Norðurlandi vestra.  

Heildar upphæðin nam 647 milljónum, þar af fara rúmar tólf milljónir til Norðurlands vestra. 

  • Húnavatnshreppur hlýtur kr. 2.000.000,- styrk til frekari undirbúnings og hönnunar ferðamannaaðstöðu við Þrístapa og Ólafslund„Verkefnið er mikilvægt vegna náttúruverndar á merkum sögustað undir vaxandi álagi og stuðlar að frekari uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu,“ segir í lista yfir styrkveitingar. 
  • Húnaþing vestra hlýtur kr. 2.800.000,- styrk til skipulags og hönnunar við Kolugljúfur í Víðidal. „Forgangsverkefni vegna náttúruverndar, aðgengis- og öryggismála á viðkvæmu og hættulegu svæði sem nýtur vaxandi vinsælda hjá ferðamönnum. Hluti verkefnis er á lista Stjórnstöðvar um brýnar aðgerðir til að tryggja öryggi á ferðamannastöðum,“ segir í tilkynningu. 
  • Minjastofnun Íslands hlýtur kr. 2.841.752,- styrk til fullnaðarhönnunar áfangastaðar við Borgarvirki í Húnaþingi. „Mikilvægt verkefni vegna öryggis- og aðgengismála og verndunar náttúru- og menningarminja,“ segir í tilkynningu. 
  • Æðarvarp ehf. hlýtur Kr. 4.560.000,- styrk til lagfæringa á göngustíg, stækkunar bílaplans og merkinga á selaskoðunarstað við Illugastaði. „Nauðsynleg innviðauppbygging á vinsælum selaskoðunarstað. Stígahluti verkefnisins telst til náttúruverndar en staðurinn allur ber þess merki að hafa verið byggður upp með sjálfbærni að leiðarljósi,“ segir í tilkynningunni.   

51 milljón er úthlutað sérstaklega af ráðherra til brýnna verkefna vegna öryggis á ferðamannastöðum að tillögu Stjórnstöðvar ferðamála. Styrkir til einstakra verkefna nema þannig alls tæplega 596 milljónum. Hæstu einstöku styrkirnir eru 30 m.kr. og eru veittir fjórir slíkir; til verkefna við Dynjanda, Geysi, Skaftafell og Dettifoss.

Hér má skoða listi og samantekt yfir verkefnin sem fengu styrki.

Íslandskort með styrkveitingum.

Fleiri fréttir