Tveggja ára samningur um sálfræðiþjónustu í leik- og grunnskólum í Austur Húnavatnssýslu
Félags- og skólaþjónusta Austur Húnavatnssýslu og Alda Ingibergsdóttir undirrituðu sl. föstudag, 24. nóvember, tveggja ára samning. Samningurinn lýtur að sálfræðiþjónustu í leik- og grunnskólum í Austur Húnavatnssýslu ásamt samstarfi við barnavernd á svæðinu.
Alda hefur víðtæka reynslu úr skólaþjónustu, heilsugæslu og barnavernd. Alda mun koma einu sinni í mánuði og sinna fjarvinnu þess á milli. Hér sjást Þórdís Hauksdóttir, fræðslustjóri, Alda Ingibergsdóttir, sálfræðingur, og Sara Lind Kristjánsdóttir, félagsmálastjóri, við undirritun samnings.