UMSS 110 ára

Þátttakendur frá UMSS á Unglingalandsmóti UMFÍ. Mynd UMFÍ
Þátttakendur frá UMSS á Unglingalandsmóti UMFÍ. Mynd UMFÍ

Ungmennasamband Skagafjarðar, UMSS, fagnar 110 ára afmæli í dag en félagið var stofnað þann 17. apríl árið 1910. Stofnendur sambandsins voru þrjú ungmennafélög í Skagafirði, Ungmennafélagið Æskan Staðarhreppi, Ungmennafélagið Framför Lýtingsstaðahreppi og Ungmennafélagið Fram í Seyluhreppi en bráðabirgðastjórn hafði þá setið frá 20. febrúar sama ár. Fyrsta stjórn sambandsins var skipuð þeim Brynleifi Tobíassyni sem var formaður, Árna J. Hafstað, ritara og Jóni Sigurðssyni, gjaldkera.

Aðildarfélögum fjölgaði eftir því sem leið á öldina. Í fróðlegri grein um afmælisbarnið sem birtist í dag á vef UMSS segir að fyrstu 50 árin hafi tólf félög gengið í sambandið og efldist starfsemin smátt og smátt og á það að baki glæsta sögu. Meðal helstu stórverkefna sem sambandið hefur tekist á hendur eru landsmót UMFÍ, það fyrsta var haldið árið 1971 og var þá gert stórátak í uppbyggingu keppnisaðstöðu á Sauðárkróki. Síðan þá hafa verið haldin fimm landsmót á Sauðárkróki,það síðasta sumarið 2018, og hafa þau öll tekist með miklum ágætum og verið mikil lyftistöng fyrir íþróttalíf í firðinum.

Stefnt var á að halda ársþing sambandsins þann 7. apríl síðastliðinn en af því gat ekki orðið vegna samkomubanns af völdum COVID-19 faraldursins. „Þetta eru skrýtnir tímar,“ segir Klara Helgadóttir, formaður UMSS í viðtali á vef UMFÍ. „Við ætluðum að hafa veglegt ársþing í apríl, bjóða upp á þriggja rétta veislu með ljúffengu kjöti úr Skagafirði fyrir hátt í 90 manns, þingfulltrúa, gesti og fleiri. Þetta átti að vera stórt þing, það hundraðasta að viðbættu afmælinu. En ætli við gerum nokkuð fyrr en í haust.‟  

Aðildarfélög UMSS eru nú tíu talsins; ungmennafélögin Hjalti, Neisti og Tindastóll, Ungmenna- og Íþrótttafélagið Smári, Hestamannafélagið Skagfirðingur, Íþróttafélagið Gróska, Golfklúbbur Sauðárkróks, Bílaklúbbur Skagafjarðar, Vélhjólaklúbbur Skagafjarðar og Siglingaklúbburinn Drangey. Stjórn sambandsins skipa þau Klara Helgadóttir formaður, Gunnar Þór Gestsson varaformaður, Sigríður Fjóla Viktorsdóttir gjaldkeri, Þorvaldur Gröndal ritari og Sigmundur Jóhannessson meðstjórnandi.

Feykir óskar afmælisbarninu innilega til hamingju með áfangann.

Fleiri fréttir