Upplestrarhátíð í Árskóla
feykir.is
Skagafjörður
26.02.2015
kl. 13.49
Upplestrarhátíð 7. bekkjar Árskóla á Sauðárkróki verður haldin í matsal skólans í dag, fimmtudaginn 26. febrúar kl. 17:00. Þar verða valdir átta fulltrúar 7. bekkjar, sex aðalmenn og tveir til vara, sem taka munu þátt í upplestrarhátíð grunnskólanna í Skagafirði.
Allir eru velkomnir, segir á vefsíðu Árskóla.
Fleiri fréttir
-
Stefnir í stærsta Hrekkjavökuball sögunnar á Hofsósi
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning 29.10.2026 kl. 13.44 oli@feykir.is„Föstudaginn 30. október mun fara fram Halloween ball Friðar 2026 í Höfðaborg á Hofsósi. Þetta er árlegur viðburður sem við erum alltaf með en þessi er sá stærsti sem við höfum haldið,“ segir Konráð Freyr Sigurðsson forstöðumaður Húss frítímans / Félagsmiðstöðvarinnar Friðar á Sauðárkróki þegar Feykir spurði hann í morgun út í Hrekkjavökuballið mikla.Meira -
Maddie Sutton til liðs við Stólastúlkur á ný
Líkt og Feykir sagði frá fyrr í morgun þá hefur Körfuknattleiksdeild Tindastóls samið á ný við Maddie Sutton og mun hún mæta til leiks á næstu vikum. „Maddie hefur látið vel að sér kveða innan vallar sem utan og hefur unnið hug og hjörtu leikmanna, þjálfara og stuðningsfólks. Hún er einstaklega geðþekk og jákvæð og kemur með góða stemningu í hópinn,“ segir í tulkynningu frá kkd. Tindastóls.Meira -
Myndlistasýning barna í Hillebrandtshúsi á Blönduósi
Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall er í fullum gangi á Norðurlandi vestra. Hátíðin hófst 21. október og stendur hún til 4. nóvember, undir yfirskriftinni Öll saman. Nú á föstudaginn opnar myndlistasýning í Hillebrandtshúsinu á Blönduósi en þema hennar er Börn.Meira -
Sóknarleikurinn í molum gegn vörn Valsstúlkna
Lið Vals kom í Síkið í gærkvöldi í fimmtu umferð Bónus deildar kvenna. Fyrir leik var vitað að lið Tindastóls yrði án Quinzey Fulmore, stóra bandaríska leikmannsins, sem hafði yfirgefið liðið. Þetta nýttu gestirnir sér heldur betur, lokuðu teignum og þar sem skotnýting utan 3ja stiga línunnar var ekki til að hrópa húrra yfir þá gekk sóknarleikurinn vægast sagt brösuglega hjá Stólastúlkum. Lokatölur 46-72.Meira -
Áhrif flóða í Miklavatni í Fljótum eru margvísleg
Ósinn við Miklavatn í Fljótum er enn að gera bændum grikk. „Athygli verðar breytingar eiga sér nú stað á ósasvæði Miklavatns þar sem ósinn stíflast þegar sjávarstaða er há. Þá hækkar yfirborð Miklavatns um tugi sentimetra þannig að vegurinn að og frá Fljótaárbrúnni verður umflotinn auk þess sem tún og beitilönd fara undir vatn,“ sagði Halldór Gunnar Hálfdansson bóndi á Molastöðum nýverið í færslu á Facebook. Feykir spurði hann nánar út í málið.Meira
