Króksamót á morgun - Leikjaniðurröðun, riðlaskipting og liðsskipan
Sjötta Króksamót Tindastóls í körfubolta, fyrir iðkendur í 1.-6. bekk, verður haldið í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki á morgun, laugardaginn 9. janúar. Mótið hefst kl: 10:00 og stendur til um kl. 15:00. „Að þessu sinnui er 14 lið sem mæta til keppni, tíu lið frá Tindastól og fjögur lið frá Þór Akureyri,“ segir í fréttatilkynningu.
„Við hvetjum alla til að mæta og fylgjast með upprennandi körfuboltastjörnum sýna snilli sína á vellinum,“ segir loks í tilkynningunni.