Úrslitafárið framundan
Drengja- og unglingaflokkar Tindastóls hafa staðið sig vel á tímabilinu og þegar þetta er ritað er drengjaflokkur í þriðja sæti í sínum riðli með 16 stig en eiga tvo leiki til góða, samkvæmt fréttatilkynningu frá Unglingaráði Tindastóls.
Þeir hafa tapað tveimur leikjum eins og efstu tvö liðin, Haukar og Grindavík/Þór sem eru með 20 stig. Unglingaflokkur er í efsta sæti og hafa ekki tapað leik, og eru með 22 stig.
„Einhverjir leikmenn þessara flokka eru svo líka að spila með Meistaraflokki, sem er í öðru sæti í Dominos- deildinni, þannig að það hefur því verið nóg að gera hjá strákunum okkar í vetur og staðan gefur góðar vonir um gott tímabil. Þar sem leikjaplan beggja þessara flokka er með sama sniði og leikjaplan meistaraflokkana, þ.e. að spilað er 2x við hvert lið 1 leik á heimavelli og annan á útivelli, eru ferðalögin orðin mörg og ennþá einhver eftir,“ segir í tilkynningunni.
Drengjaflokkur er kominn í úrslit Bikarkeppni KKI og munu mæta Haukum í Laugardalshöllinni nk. laugardag. „Þessi lið hafa mæst áður í úrslitaleik í bikarkeppninni, en það var árið 2011 og þá unnu okkar menn. Strákarnir mættu Breiðablik í átta liða úrslitum, sá leikur fór fram í Smáranum og vann Tindastóll 85-70, í fjögurra liða úrslitum mættu þeir svo Njarðvík, í Njarðvík, sem þeir unnu einnig, en sá leikur fór 96-91 í framlengdum leik, þeir eru því komnir í úrslit.“
Úrslitaleikurinn er eins og fyrr segir á laugardag og hefst kl: 19:00, að loknum leik KR og Stjörnunnar í mfl. karla, en þessa helgi verður leikið til úrslita í öllum flokkum.