Viðbragðsáætlun í landbúnaði vegna COVID 19

Nauðsynlegt er fyrir bændur að hafa viðbragðsáætlun sem tekur til þátta sem mikilvægir eru til að tryggja órofinn búrekstur komi til veikinda, segir á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins. Þar er brýnt fyrir bændum að gera ráð fyrir að afleysingamaður geti gengið inn í dagleg störf án þekkingar á viðkomandi búi eða með aðstoð bónda en þá skiptir viðbragsáætlun hvers bús höfuðmáli.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur útbúið grunn að viðbragsáætlun fyrir helstu gerðir búrekstrar sem byggð er upp með það að markmiði að auðvelda bændum greiningu á lykilþáttum starfseminnar með sniðmáti til að skrá mikilvæga þætti og aðrar nauðsynlegar upplýsingar. Áætlunin miðast einkum við bú sem rekin eru af einyrkjum þar sem aðrir eru lítið inni í daglegum störfum en getur einnig nýst stærri búum þar sem viðbragðsáætlanir eru ekki nú þegar til staðar.

Helstu atriði viðbragsáætlunar taka m.a. til teikninga af gripahúsum þar sem merktir eru inn mikilvægir staðir s.s. rafmagnstafla, vatnsinntök, gjafakerfi, dráttar- og vinnuvélar og hvernig rafstöð skal tengd og ræst, sé hún til staðar. Hnitmiðuð símaskrá búsins flýtir einnig viðbragði.

Stutt og markviss leiðbeiningamyndbönd þar sem gengið er um búið og farið yfir mikilvæga þætti starfseminnar geta verið mjög gagnleg, segir á rml.is, en þau nýtast jafnframt til frekari útskýringa á tækjabúnaði eða öðrum lykilþáttum búsins. Myndböndin er svo hægt að senda til afleysingamanns í gegnum samskiptaforrit (Facebook) eða tölvupóst.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir