World Snow Day um helgina
Sunnudaginn 17. janúar næstkomandi verður alþjóðlegi „World Snow Day“ eða „Snjór um víða veröld“ haldinn í Tindastól og á öllum öðrum skíðasvæðum landsins. Í Tindastóli verður öllum krökkum 18 ára og yngri boðið frítt í brekkurnar og 50% afsláttur verður veittur af allri skíðaleigu.
Opið verður frá kl. 11 til 16.