Annar sjúkrabíla Brunavarna Skagafjarðar farinn að „flagga rauðu“

Ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um kaup á 25 nýjum sjúkrabílum liggur fyrir í kjölfar útboðs Ríkiskaupa og er endurnýjun sjúkrabílaflota landsins þar með hafin í samræmi við samkomulag Sjúkratrygginga Íslands og Rauða krossins á Íslandi frá 11. júlí síðastliðnum. Reiknað er með að fyrstu bílarnir verði afhentir fullbúnir til notkunar í september á næsta ári.

Frá þessu er sagt  á vef Sjúkratrygginga Íslands en fyrirtækið Fastus átti tilboðið sem skoraði hæst og var tekið. Bílarnir 25 eru af tegundinni Mercedes Benz Sprinter. Þeir eru stórir og rúmgóðir sem tryggir sjúklingum góðar aðstæður, auðveldar sjúkraflutningamönnum að sinna þeim um borð og eykur þannig öryggi þjónustunnar. Í útboðinu var áhersla lögð á að nýir bílar myndu uppfylla ströngustu kröfur sérfræðinga varðandi öryggi, aðbúnað og vinnuumhverfi.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir þetta stóran og kærkominn áfanga: „Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 er sérstök áhersla lögð á skilvirka og öfluga sjúkraflutninga sem lið í því að jafna aðgengi landsmanna að góðri heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Endurnýjun sjúkrabifreiða og búnaðar skiptir þar miklu máli, til að halda uppi tilskildum gæðum, tryggja öryggi sjúklinga og sjúkraflutningamanna og standa undir umfangi þjónustunnar til framtíðar“ segir heilbrigðisráðherra.

Samkvæmt fyrrnefndu samkomulagi er gert ráð fyrir að alls verði 68 sjúkrabifreiðar endurnýjaðar fyrir árslok 2022, en flotinn samanstendur af um 80 bílum alls. Samkomulagið gerir því ráð fyrir endurnýjun á stærstum hluta þeirra sjúkrabíla sem nú eru í notkun á samningstímanum. Með þessu mun takast að endurnýja alla sjúkrabíla sem eru í fremstu röð viðbragðs.

„Það eru um 30 bílar sem eru farnir að „flagga rauðu“, eins og stundum er sagt. Annar bíllinn hjá okkur er í þeim hópi,“ segir Svavar Atli Birgisson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Skagafjarðar. „Eins og komið hefur fram verða um 25 bílar endurnýjaðir næsta haust, 12 í september og 13 í nóvember. Vonandi verður okkar bíll í þessum hópi. Það er svo áætlað að fara í annað útboð mjög fljótlega.“

Brunavarnir Skagafjarðar gera út tvo sjúkrabíla og var annar þeirra keyrður 22 þús. km í fyrra og hinn 20 þús. km. Að sögn Svavars Atla voru sjúkraflutningar alls 378 árið 2018. Heldur hefur dregið úr útköllunum, ef miðað er við sama tíma og í fyrra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir