Árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands hafið

Í dag hefst árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, Bleika slaufan, undir slagorðinu „Þú ert ekki ein“. Í átakinu er lögð áhersla á mikilvægi stuðnings og vináttu þegar kona greinist með krabbamein, þegar tilveran breytist snögglega og við tekur tími sem getur reynst afar erfiður. Í tilkynningu frá félaginu segir að stuðningur fjölskyldu og vina skipti miklu máli í öllu ferlinu, allt frá greiningu, en einnig faglegur og félagslegur stuðningur sem Krabbameinsfélagið veitir án endurgjalds. Rannsóknir sýna að þeim vegnar betur sem fá stuðning í ferlinu. Bleika slaufan er með nokkuð breyttu sniði í ár og í fyrsta sinn er Bleika slaufan ekki næla heldur hálsmen.

„Það var kominn á breytingar eftir 12 ár í formi nælu,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. „Við höfum reglulega heyrt af áhuga stuðningsmanna og kvenna, á að fá annars konar skartgrip og við erum viss um að þetta gullfallega hálsmen höfði til enn breiðari hóps. Við hlökkum til að sjá fólk á öllum aldri ganga með hálsmenið og sýna þannig stuðning við konur og krabbamein í verki”.

Guðbjörg Ingvarsdóttir, skartgripahönnuður í Aurum, hannar slaufuna. Hún lýsir hönnun slaufunnar þannig: „Blómið í slaufunni táknar jákvæðni og vellíðan og hringurinn táknar kvenlega orku og vernd.“ Guðbjörg leggur áherslu á að hálsmen passi bæði konum og körlum: „Enda geta karlmenn verið alveg ófeimnir við að bera Bleiku slaufuna í ár.“

Bleika slaufan kostar 2.500 krónur og er seld á bleikaslaufan.is og hjá fjölmörgum verslunum um land allt. Að vanda verður hátíðarslaufa Bleiku slaufunnar til sölu í takmörkuðu upplagi, en einnig hafa tvær gullslaufur verið hannaðar sem boðnar verða upp í fjáröflunarskyni.

„Annars vegar er um að ræða gullhálsmen og hins vegar gullnælu sem er sérstaklega ætluð þeim sem sakna nælunnar,“ segir Guðbjörg, en myndband um gerð slaufunnar má finna HÉR.

Bein útsending frá Bíókvöldi Bleiku slaufunnar
Átakinu verður formlega ýtt úr vör 1. október á Bíókvöldi Bleiku slaufunnar þegar Downton Abbey verður sýnd á sérstakri bleikri sýningu í stóra sal Háskólabíós. Húsið verður opnað kl. 19 og í anddyri verður Bleik stemmning, þar sem Krabbameinsfélagið kynnir helstu starfsemi sína og styrktaraðilar kynna vörur sínar til stuðnings átakinu. Bein útsending verður frá dagskrá kvöldsins á netinu fram að bíósýningunni. Dagskráin hefst klukkan 20:00 og kynnar kvöldsins eru leikkonurnar Dóra Jóhannsdóttir og Elva Ósk Ólafsdóttir. Hægt er að kaupa miða HÉR og útsendinguna má sjá á bleikaslaufan.is, á visir.is og samfélagsmiðlum félagsins og nokkurra hagaðila.

Vinkonuklúbbur Krabbameinsfélagsins
Undanfarin 12 ár hefur Krabbameinsfélagið tileinkað októbermánuð baráttu gegn krabbameinum hjá konum. Söfnunarfé Bleiku slaufunnar verður í ár varið til þeirrar fjölbreyttu starfsemi sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir, með sérstakri áherslu á krabbamein hjá konum. Konur eru hvattar til að skrá sig í Vinkonuklúbb Krabbameinsfélagsins þar sem þær fá reglulega fræðslumola um fyrirbyggjandi þætti, hvatningu um þátttöku í skimanir og fleira.  Skráning og frekari upplýsingar eru á Bleikaslaufan.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir