Byggðasöfnin fá viðurkenningu Safnaráðs
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur samþykkt tillögu Safnaráðs um viðurkenningu 39 íslenskra safna. Meðal þeirra eru byggðasöfnin tvö á Norðurlandi vestra, annars vegar Byggðasafn Skagfirðinga og hins vegar Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði.
Viðurkenningin er ótímabundin og ráðherra getur afturkallað hana að fenginni tillögu Safnaráðs, telji ráðið að safnið uppfylli ekki lengur skilyrði viðurkenningar.
Viðurkenning Safnaráðs er forsenda þess t.d. að safnið geti sótt um rekstrar- og verkefnastyrki til Safnasjóðs. Viðurkenndum söfnum ber að starfa í samræmi við ákvæði safnalaga og skilyrði reglugerðar um viðurkenningu safna.