Ferðamenn ánægðir með söfn á Norðurlandi

Fjölskyldufjör á fallegum degi í Glaumbæ. Mynd: Ylfa Leifsdóttir.
Fjölskyldufjör á fallegum degi í Glaumbæ. Mynd: Ylfa Leifsdóttir.

Ferðamenn sem fara á söfn á Norðurlandi eru ánægðir með heimsóknir þangað, innlendir sem erlendir ferðamenn. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem Rannsóknarmiðstöð ferðamála vann að beiðni Markaðsstofu Norðurlands, en niðurstöður hennar voru kynntar á ráðstefnu á Hótel Kea fyrir helgi. 97% svarenda í könnun RMF sögðust annað hvort vera ánægðir eða mjög ánægðir með heimsóknir á söfnin og 90% sögðust ætla mæla með því við fjölskyldu og vini að þeir gerðu slíkt hið sama.

Á heimasíðu Markaðsráðs Norðurlands segir að niðurstöðurnar séu mjög ánægjulegar fyrir sögutengda ferðaþjónustu á Norðurlandi og raunar alla ferðaþjónustu, því góð upplifun ferðamanna sé auðvitað lykilatriði í allri þróun greinarinnar.

Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar vann einnig skýrslu fyrir Markaðsstofu Norðurlands, upp úr könnuninni Dear Visitors sem hefur verið unnið markvisst með frá árinu 2004. Þar kom fram að ferðamenn á Norðurlandi eru talsvert líklegri til að skoða söfn eða sýningar en hinn almenni ferðamaður á Íslandi, og því megi gera ráð fyrir því að slík afþreying dragi ferðamenn inn í landshlutann upp að nokkru marki. Ferðamenn á Norðurlandi eru sömuleiðis líklegri til þess að skoða kirkjur og fræga sögustaði.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir