Fiskikör skulu vera hrein

Mynd af mast.is.
Mynd af mast.is.

Eftirlitsmenn Matvælastofnunar hafa víða orðið varir við óhreinindi í fiskikörum eins og fram kemur á heimasíðu stofnunarinnar en reglulega berast kvartanir frá sjómönnum og fiskkaupendum um óhrein og skemmd löndunarkör. Kör sem notuð eru fyrir matvæli þurfa að vera hrein og er það eingöngu tryggt með hreinsun eftir hverja notkun en óæskilegt er að nota fiskikör fyrir annað en matvæli.

Kör til annarra nota skal merkja sem slík og ekki nota aftur fyrir matvæli, segir á mast.is en þar eru birtar nokkrar myndir sem eftirlitsmenn hafa tekið af körum á höfnum landsins, eru í notkun sem fiskikör, ekki afskrifuð kör sem tekin hafa verið afsíðis. Matvælastofnun mun fylgjast áfram með ástandi kara og hvetur þá sem leggja kör fram til löndunar að minnast þess að þau eru ílát undir matvæli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir