Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra fagnar 40 ára afmæli sínu
Á morgun, laugardaginn 21. september, mun Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra halda upp á 40 ára afmæli skólans. Af því tilefni eru allir velunnarar skólans boðnir velkomnir til afmælisdagskrár sem hefst á sal Bóknámshúss skólans kl. 13:00. Að lokinni dagskrá verður boðið upp á opið hús í öllu húsnæði skólans kl. 14:00-15:30.
Starfsfólki skólans og fyrrum starfsfólki hans var boðið til borðhalds í Frímúrarahúsinu á Sauðárkróki en þar þurfti að skrá sig til þátttöku.
Á árabilinu 2014–2018 hefur meðalfjöldi nemenda í FNV, vor og haust, verið um 500 á önn.
Liðlega 61% nemenda skólans haustið 2018 var á hefðbundnum framhaldsskólaaldri, þ.e. 16–20 ára og voru karlar hlutfallslega fleiri en konur í þessum aldurshópi eða 56,5% á móti 43,5%. Eins og vænta mátti komu 67,7% nemendahópsins af Norðurlandi vestra haustið 2018 og flestir frá Sauðárkróki og dreifbýlis Skagafjarðar.
(Fréttin hefur verið uppfærð)
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.