Fundað með stýrihópi Stjórnarráðsins

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV og Hólmfríður Sveinsdóttir, formaður stýrihópsins. Mynd:ssnv.is
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV og Hólmfríður Sveinsdóttir, formaður stýrihópsins. Mynd:ssnv.is

Fulltrúar úr stýrihópi Stjórnarráðsins um byggðamál funduðu sl. þriðjudag á Hvammstanga með stjórn og framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Hópurinn er nú á fundaferð um landið til að ræða við stjórnir landshlutasamtaka um sóknaráætlanir og framgang þeirra í héraði. og var fundurinn liður í henni.

Meðal hlutverka stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál er að efla samhæfingu innan stjórnarráðsins í málefnum sem snúa að byggðamálum og tryggja virkt samráð við sveitarstjórnarstigið í þeim málaflokki. Í því felst meðal annars umsjón með sóknaráætlunum landshuta sem er afar mikilvægt því í stýrihópnum koma saman fulltrúar allra ráðuneyta auk fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og áheyrnarfulltrúa frá landshlutasamtökunum og Byggðastofnun.

Á vef SSNV segir að fulltrúar stýrihópsins hafi fengið kynningu á nýrri Sóknaráætlun Norðurlands vestra, helstu áherslum hennar og verkefnum sem framundan eru.  Farið var yfir mælikvarða áætlunarinnar og hvernig árangur hennar verður gerður sýnilegur í sérstöku mælaborði sem verið er að vinna að, sem og fleira sem málefninu tengist. Ennfremur segir að fundir sem þessir séu afar mikilvægir, bæði fyrir landshlutasamtökin og stýrihópinn, þar sem samtal um byggðamál þarf að vera stöðugt og virkt til að tryggja að sem bestur árangur náist. 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir