Fyrirkomulag rjúpnaveiða í Húnaþingi vestra

Rjúpa. Mynd:visindavefur.is
Rjúpa. Mynd:visindavefur.is

Rjúpnaveiðitímabilið nálgast og hefur leyfilegum veiðidögum fjölgað úr 15 í 22 að þessu sinni. Heimilt verður að veiða rjúpu frá 1. nóvember til og með 30. nóvember alla daga, að undanskildum miðvikudögum og fimmtudögum.  Sölubann er áfram við lýði og er því óheimilt að flytja út, bjóða til sölu eða selja rjúpur og rjúpnaafurðir, að því er kemur fram á vef Umhverfisstofnunar. Eru veiðimenn eindregið hvattir til að sýna hófsemi og eru sérstaklega beðnir um að gera hvað þeir geta til að særa ekki fugl umfram það sem þeir veiða m.a. með því að ljúka veiðum áður en rökkvar.

Á vef Húnaþings vestra er fyrirkomulag rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins kynnt. Er þess vænst að veiðimenn virði fyrirkomulagið og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.

Fyrirkomulag rjúpnaveiða í eignarlöndum Húnaþings vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2019:

1. Veiðimönnum með gilt veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða tvennskonar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði. Kort af svæðunum má sjá á heimasíðu Húnaþings vestra www.hunathing.is

Svæðin eru:

  • 1. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði ásamt jörðunum Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og eignarhlut Húnaþings vestra í Öxnatungu.
  • 2. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.

2. Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2019 og veitir einungis  skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.

3. Veiðileyfin verða til sölu hjá Ferðaþjónustunni Dæli. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000 á dag.

4. Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði 1 er takmarkaður við 4 byssur á dag en 5 byssur á svæði 2 og tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

5. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.


Rjúpnaveiði í Víðidal

Rjúpnaveiði í löndum Syðra-Kolugils, Hrappsstaða, Gafls og Lækjarkots í Víðidal verður eins og undanfarin haust takmörkuð.

  • Frá 1. – 12. nóvember eru seld leyfi í eignarland Húnaþings vestra í Gafli sunnan Gaflsgjár, og Lækjarkots, 4 byssur á dag.
  • Frá 15. – 30. nóvember eru seld leyfi í löndum Syðra-Kolugils, Hrappsstaða, Gafls og Lækjarkots, 6 byssur á dag.

Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000 á dag. Veiðileyfi verða eingöngu seld hjá Ferðaþjónustunni Dæli sími 451 2566. Þar verður líka tilboð á gistingu á rjúpnaveiðitímanum. Netfangið er daeli@daeli.is. Allar upplýsingar um rjúpnaveiðar á þessu svæði eru veittar í Dæli.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir